Borgarráð samþykkti í dag umfangsmiklar skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Tillögurnar eru liður í að ná fram hagræðingu og stjórnkerfisbreytingu hjá borginni og er markmið breytinganna að einfalda stjórnsýslu, stytta boðleiðir, draga úr yfirbyggingu og nýta fjármuni borgarinnar betur. Á sama tíma á að standa vörð um framlínuþjónustu. Þetta kemur fram í tilkynningu en fréttir hafa borist um uppsagnir hjá borginni í dag og um niðurlagningu mannréttindaskrifstofu borgarinnar.