Fimm sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Umsóknarfrestur rann út 22. júní. Þessu er greint frá í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.Umsækjendurnir eru: * Arna Rut Ottesen Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri * Gunnar Kristinn Þórðarson, stuðningsfulltrúi * Jón Magnús Eyþórsson, tölvunarfræðingur * Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, hjúkrunarfræðingur * Þórarna Gró Friðjónsdóttir, settur forstjóri Þriggja manna hæfnisnefnd fer yfir umsóknirnar og skilar ráðgefandi áliti til heilbrigðisráðherra sem skipar í stöðuna til fimm ára.RÚV / Rúnar Snær Reynisson