Danska lögreglan getur ekki staðfest að drónar hafi verið á flugi yfir flugvellinum í Kaupmannahöfn í september þegar lokað var á flugumferð í fjóra klukkutíma í varúðarskyni. Lögregla kynnti í morgun úttekt á uppákomunni.Samkvæmt frétt Danska ríkisútvarpsins, DR, segjast talsmenn lögreglunnar hvorki geta sannað né afsannað að drónar hafi flogið yfir vellinum. Þó hafi eitthvað verið þar á ferð sem lögregla geti ekki skýrt að fullu.Morguninn eftir uppákomuna sagði lögreglumaður í samtali við fjölmiðla að líklega hefði einhver kunnáttuaðili staðið á bak við flugið, en í dag sagði Sören Thomassen hjá lögreglunni að sú fullyrðing hefði verið óskýr.Flug hins óþekkta flygildis olli miklu fjaðrafoki, enda var það sett í samhengi við fjölþáttaógnir sem steðja að mörgum Evrópuríkjum. Mette Frederik