Jóhann Freyr Hallgrímsson, 37 ára gamall maður frá Akureyri, situr í gæsluvarðhaldi í borginni Phuket á Taílandi og bíður málsmeðferðar vegna kæru um þjófnaðarbrot. Jóhann er sakaður um að hafa tekið traustataki handtösku með síma og veski kvenkynsleigubílstjóra sem ók honum að hóteli hans frá sjúkrahúsi í Phuket.