Sameyki tilkynnt fyrirfram um uppsagnir hjá borginni

Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, sem sumir af starfsmönnum Reykjavíkurborgar eru skráðir í, segir að nokkrir af fyrrverandi starfmönnum borgarinnar hafi þegar haft samband við stéttarfélagið.Fjölda starfsfólks Ráðhúss Reykjavíkurborgar var sagt upp eða fært til í starfi í dag. Kári staðfestir að Sameyki hafi verið tilkynnt um uppsögnina fyrirfram samkvæmt lögum um hópuppsagnir sem tilkynntar eru til Vinnumálastofnunar. Hann kvaðst þó ekki geta veitt upplýsingar um umfang uppsagnanna. Von er á frekari upplýsingum frá Reykjavíkurborg síðdegis. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur skrifstofa samskipta og viðburða verið lögð niður. Starfsfólki var ýmist sagt upp eða það fært undir aðrar deildir. Þá var öllum upplýsingafulltrúum borgarinnar sagt upp.
Sameyki tilkynnt fyrirfram um uppsagnir hjá borginni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd