Björgunarsveitir á Suðurlandi eru á leið í þrenn útköll vegna kaldra og blautra ferðamanna.Ein sveit er á leið í Baldvinsskála á Fimmvörðuhálsi að sækja göngumann sem er farinn að sýna merki ofkulnunar. Önnur sveit er á leið upp að Sultartangalóni að aðstoða ferðamenn sem festu bifreið sína og eru orðnir kaldir og blautir. Þriðja sveitin er á leið í Klakksskála suður af Kerlingarfjöllum að athuga með ferðamann.Þetta segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við fréttastofu.Umtalsverð rigning hefur verið á Suðurlandi í dag og vindur.