Læknar segja mikilvægt að fólk sem er í mjög miklum hita fylgist með einkennum eins og þreytu, höfuðverkjum, ógleði og jafnvel pirringi. Alvarlegri einkenni, eins og óráð, geta verið merki um hitaslag. Í slíkum tilfellum er mikilvægt að leita læknisaðstoðar sem allra fyrst.Það getur verið að fólk sem er komið með hitaslag sé ekki sjálft í stöðu til að leita sér aðstoðar vegna óráðs eða meðvitundarleysis. Því er mikilvægt að samferðafólk sé vakandi fyrir einkennum hvors annars.Hitaviðvaranir eru í gildi í um 15 löndum á meginlandi Evrópu. Ekkert lát er á hitabylgjunni sem gengið hefur yfir álfuna undanfarna daga. Hiti fer víða yfir 40 stig. EINKENNI SEM FLESTIR ÞEKKJA Sasan Már Nobakht er bráðalæknir á Landspítalanum í Fossvogi og á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hann segir gott að skipt