Mannréttindaskrifstofa lögð niður og uppsagnir á skrifstofu borgarstjóra

Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hefur verið lögð niður. Þetta var samþykkt á borgarráðsfundi rétt í þessu samkvæmt heimildum fréttastofu. Heimildir herma að nokkrum hafi verið sagt upp og þrír færðir til í starfi.Skrifstofa samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg var einnig lögð niður á fundinum og hefur öllum upplýsingafulltrúum borgarinnar verið sagt upp.Skrifstofur ráðhússins voru fimm. Þrjár standa eftir: skrifstofa borgarstjóra og borgarritara, skrifstofa borgarstjórnar og borgarlögmaður. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur stefnumótunar- og þróunarteymi skrifstofu borgarstjóra einnig verið lagt niður.Ekki hefur náðst í fulltrúa í borgarráði, borgarritara né borgarfulltrúa Viðreisnar, Róbert Ragnarsson, sem leiðir hagræðingarhóp meirihlutans.Ekki liggur fyrir hvort fleiri
Mannréttindaskrifstofa lögð niður og uppsagnir á skrifstofu borgarstjóra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd