Háskólinn á Bifröst á í viðræðum við Byggðastofnun um lánveitingu

Stjórnendur Háskólans á Bifröst hafa fundað með ríkisstofnuninni Byggðastofnun um mögulega lánveitingu til að ráðast í umbætur á húsnæði skólans í Norðurárdal. Skólinn hefur reynt að selja fasteignirnar um tveggja ára skeið en án árangurs. Þetta kemur fram í svörum frá rektor skólans, Ólínu Þorvarðardóttur, við spurningum fréttastofu um málið. > Við erum opin fyrir öllu í því sambandi. Ólína segir í svarinu að Háskólinn á Bifröst vilji koma þessum fasteignum í betri notkun, hugsanlega með útleigu til rekstraraðila í Borgarbyggð, og að þá þurfi fé til að gera eignirnar upp. Hún segir að ekki sé búið að ganga frá umsókn um lán til þess til Byggðastofnunar en viðræður hafi farið fram. Fréttastofa spurði Ólínu um þessar viðræður við Byggðastofnun vegna heimilda um að þetta samtal um lánveiti
Háskólinn á Bifröst á í viðræðum við Byggðastofnun um lánveitingu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd