Rútubílstjóri ógnaði ferðamanni við Hvalnesvita – „Ég byrjaði að öskra á hjálp og öskraði á hann að sleppa“

Erlendur ferðamaður er ósáttur við rútubílstjóra eftir atvik á vegi við Hvalnesvita í Austur Skaftafellssýslu. Hvorugur vildi bakka á einbreiðum vegi og rútubílstjórinn reif upp hurðina hjá ferðamanninum og reyndi að komast inn í bílinn til að bakka honum sjálfur.Ferðamaðurinn greinir frát atvikinu á samfélagsmiðlinum Reddit og spyr ráða. Hann hefur þegar tilkynnt málið til rútufyrirtækisins en það hafi engu skilað.Atvikið átti sér stað á þriðjudag við Hvalnesvita, undir Eystrahorni. En frá vitanum er einbreiður malarvegur sem liggur niður að þjóðveginum.
Rútubílstjóri ógnaði ferðamanni við Hvalnesvita – „Ég byrjaði að öskra á hjálp og öskraði á hann að sleppa“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd