Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi telja að með því að Landhelgisgæslan fái heimildir til að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota á skipalögum skapist hætta á að sjófarendur í neyð leiti ekki aðstoðar. Innviðaráðuneytið kveður breytinguna munu auka skilvirkni enda sé Landhelgisgæslan í mörgum tilfellum sá aðili sem verði var við brotin.