Nýju deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut hafnað

Nýr meirihluti í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar hafnaði tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut á fundi í gær. Tillagan er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu og gerði ráð fyrir tveimur miðjusettum sérakreinum fyrir almenningssamgöngur og og göngu- og hjólastígum beggja vegna göturýmis.Deiliskipulag fyrir Suðurlandsbraut var bitbein í kosningabaráttunni fyrir borgarstjórnarkosningarnar í síðasta mánuði og nýr meirihluti hét því að láta endurskoða skipulagið. Atvinnurekendur á svæðinu hafa áhyggjur af verulegri fækkun bílastæða með breytingunni.Í bókun meirihluta umhverfis- og skipulagsráðs eftir að tillagan var felld á fundi ráðsins í gær segir að ekki séu forsendur fyrir samþykkt tillögunnar. Hún þrengi að atvinnustarfsemi á svæðinu og byggi á forsendum samgönguupp
Nýju deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut hafnað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd