Loftkæling orðin að pólitísku bitbeini í hitabylgjunni

Nýtt hitamet var slegið í Frakklandi í nótt, þegar meðalhiti í landinu náði 22 gráðum á Celsius - gamla metið, 21,6 gráða, var þó ekki orðið mjög gamalt, því það var sett aðfaranótt þriðjudags. Í gærdag var svo annað met slegið; þá mældist hitinn í París 40,9 gráður - mesti hiti frá upphafi mælinga í borginni.Stjórnvöld í Frakklandi og reyndar mun víðar í Evrópu hafa gefið út rauðar viðvaranir síðustu daga vegna hitabylgjunnar sem haldið hefur álfunni í heljargreipum undanfarna daga - en í Frakklandi eru afleiðingar hitabylgjunnar, og leiðir til að fást við hana, orðnar að pólitísku bitbeini.Deilan snýst um loftkælingu, sem er af skornum skammti í Frakklandi, rétt eins og í flestum öðrum ríkjum Evrópu. Aðeins um fjórðungur bygginga í Frakklandi er með loftkælingu og langflest sjúkrahús og
Loftkæling orðin að pólitísku bitbeini í hitabylgjunni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd