Stjórnvöld í Tehran saka Atlantshafsbandalagið um að vera „samsekt“ í stríði Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Esmaeil Baqaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, sakar NATO um að brjóta ófrávíkjanleg viðmið alþjóðlaga og grundvallarreglur stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna með svívirðilegum hætti.Tilefni orða Baqaeis eru ummæli Mark Ruttes um stuðning bandalagsþjóða NATO í Evrópu við Bandaríkjaher á meðan á stríðinu í Íran stóð.Á fundi þeirra Ruttes og Donalds Trumps Bandaríkjaforseta lét Trump í ljós vonbrigði sín með lítinn stuðning NATO-ríkja í stríðinu.Rutte framkvæmdastjóri NATO sagðist vita af einstaka atriðum sem Trump væri virkilega óánægður með. Hann áréttaði þó að bandamenn hans í Evrópu hefðu stutt við her Bandaríkjanna á síðustu mánuðum. Hann sagði að flugvélar Bandaríkj