Utanríkisráðherra Spánar segir átak spænskra stjórnvalda í málefnum innflytjenda sýna fram á að hægt sé að reka innflytjendastefnu með góðum árangri með mannúð að leiðarljósi. Áherslur bandarískra stjórnvalda á alþjóðavettvangi geri það að verkum að Evrópuríki þurfi að reiða sig í auknum mæli á hvort annað. Stefnt sé að opnun spænsks sendiráðs á Íslandi eins fljótt og auðið er.Jose Manuel Albares Bueno, utanríkisráðherra Spánar, fundaði með utanríkisráðherra á opnum fundi í Norræna húsinu í vikunni. Þar ræddu ráðherrarnir meðal annars sviptingar á alþjóðavettvangi og samskipti Íslands og Spánar. VILJA VEITA HÁLFRI MILLJÓN INNFLYTJENDA DVALARLEYFI TIL EINS ÁRS Yfirvöld á Spáni ákváðu nýverið að hrinda af stað átaki sem miðar að því að veita um hálfri milljón innflytjenda dvalarleyfi í ei