Einn Frakkanna státar sig af bílferðinni

Franskur ferðamaður sem var sektaður fyrir stórfelldan utanvegaakstur um helgina hefur birt kort af hluta ferðar sinnar.Frakkinn heitir Luc Haudeville og var ásamt samlöndum sínum sektaður um hundruð þúsunda um helgina fyrir að aka utan vegar á tveimur jeppum og spæna upp landslag á lokuðu svæði við Kötlujökul, Einhyrning og í Hvanngili.Haudeville birti kortið á sunnudaginn á síðunni wikiloc undir titlinum „Ísland júní 2026 annar hluti: berg og jöklar suðurstrandarinnar“.Á síðunni wikiloc geta ferðalangar um allan heim uppgötvað og deilt hver með öðrum skemmtilegum göngu- og hjólaleiðum og spennandi leiðum sem hægt er að fara á torfærubíl.Kortið sem Haudeville birti sýnir ferð sem hann keyrði á Suðurlandi, frá Höfn til Reykjavíkur. Á kortinu sést að Haudeville keyrði ítrekað utan vegar.
Einn Frakkanna státar sig af bílferðinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd