Rigning nema á Austurlandi þar sem hiti gæti náð 18 stigum

Í dag er útlit fyrir meiri vind en verið hefur síðustu daga og að rigni í flestum landshlutum nema á Austurlandi, þar sem hiti gæti náð 18 stigum. Svalara er í öðrum landshlutum, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:Gengur í suðvestan 5-13 m/s í dag, fyrst sunnantil. Rigning eða skúrir, en þurrt á Austurlandi fram eftir degi. Þar verður væntanlega hlýjast, hiti 16 til 18 stig þegar best lætur, en víða 8 til 13 stig í öðrum landshlutum.Aðeins hægari vindur á morgun og víða skúrir, en úrkomulítið austanlands. Hiti breytist lítið.Austlæg átt 5-13 á laugardag. Rigning með köflum, en að mestu þurrt norðan heiða. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Norðurlandi. Bætir í úrkomu um kvöldið og á sunnudag er útlit fyrir vætu í flestum landshlutum og milt veður.
Rigning nema á Austurlandi þar sem hiti gæti náð 18 stigum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd