Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar skorar á íslenska ríkið að setja í forgang að útbúa námsefni fyrir öll fög og alla bekki í samræmi við endurskoðun á aðalnámskrá grunnskóla sem tók gildi haustið 2024. Jafnframt er skorað á ríkið að tryggja nægt fjármagn til kaupa á námsefni svo að nemendur og kennarar hafi aðgang að vönduðu námsefni.