Vasaþjófar stálu vegabréfi í miðborginni

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar um vasaþjófnað í miðborg Reykjavíkur í kvöld eða nótt. Í morgunpósti lögreglu segir að þjófarnir hafi meðal annars stolið vegabréfi. Reglulega koma upp endurtekin tilfelli vasaþjófnaðar í miðborginni. Fyrr á árinu sá lögreglan tilefni til að vara fólk sérstaklega við þjófunum. Í fyrra voru settir upp varðturnar með öryggismyndavélum í miðborginni til að sporna við vasaþjófnaði. Þeir voru teknir niður í lok sumars en lögreglan hyggst setja þá upp á ný.Alls rötuðu 56 mál inn á borð lögreglunnar frá því klukkan fimm síðdegis í gær til klukkan fimm í morgun, að því er segir í morgunpóstinum.Eitt þeirra var tilkynning um eld í bíl sem kviknaði í Fossvogi á níunda tímanum í gærkvöld. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu náði tökum á eldinum
Vasaþjófar stálu vegabréfi í miðborginni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd