Olíu- og flutningaskip í Ómanflóa við Hormússund.AP / UncreditedVerð á Brent-norðursjávarolíu lækkaði um rúmlega prósent við opnun markaða í Asíu í morgun. Það þykir til marks um aukna bjartsýni fjárfesta til friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran. Þá hefur umferð olíuflutningaskipa um Hormússund farið stigvaxandi á síðustu dögum.Verð á tunnu af Brent-norðursjávarolíu til afhendingar í ágúst fór niður í 72,44 Bandaríkjadali við opnun markaða. Þegar markaðir lokuðu kvöldið áður en Bandaríkjaher hóf árásir á Íran í febrúar nam verðið 72,48 dölum.Eftir að stríðið í Mið-Austurlöndum hófst hækkaði hráolíuverð hratt og fór hæst í um 119 dali á tunnu í mars.