Frá æfingu sérsveitarinnar.RÚV / Ragnar VisageTveir menn voru handteknir í íbúðarhúsnæði við Hverfisgötu í Hafnarfirði í kvöld. Vísir greinir frá þessu. Ekki liggur fyrir hvers vegna lögregla og sérsveit voru kölluð að húsinu.Í frétt miðilsins er haft eftir sjónarvotti að lögregla og sérsveit hafi farið inn í hús við Hverfisgötu rétt fyrir klukkan 23 í kvöld og tekið mennina tvo fasta. Áður en lögreglan lét til skarar skríða hafði ómerktur lögreglubíll staðið fyrir utan húsið í um tvær klukkustundir.