Tveir jarðskjálftar hafa riðið yfir í Venesúela í kvöld.Sá fyrri, af stærðinni 7,2, varð rétt eftir klukkan tíu að íslenskum tíma í kvöld. Upptök skjálftans voru 21 kílómetra austur af strandbænum Moron og fannst alla leið til Bogota, höfuðborgar Kólumbíu.Tæplega mínútu síðar reið yfir annar skjálfti af stærðinni 7,5 um 45 kílómetrum frá þeim fyrri. Byggingar í höfuðborginni Caracas hafa hrunið í kjölfar skjálftanna.Gefnar hafa verið út flóðbylgjuviðvaranir í Venesúela og nokkrum eyríkjum í Karíbahafinu, þar á meðal Puerto Rico, Jómfrúareyjum og Kúrasaó.Fréttin verður uppfærðAP / Ariana Cubillos