Trump fyrir vonbrigðum með stuðning NATO í Íransstríðinu

Donald Trump Bandaríkjaforseti lét í ljós vonbrigði sín með lítinn stuðning NATO-ríkja í stríðinu við Íran á fundi hans og Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, í dag. Fundurinn var haldinn í Hvíta húsinu.Trump sagði á fundinum að þó að Bandaríkin hefðu ekki þurft á henni að halda hefði honum líkað að vera boðin aðstoð. Rutte tók upp hanskann fyrir ríki NATÓ og benti á að fjögur til fimm þúsund bandarískar flugvélar hefðu notast við evrópskar herflugstöðvar eftir að stríðið braust út.Eftir fundinn sagði Rutte við blaðamenn að Trump virði enn skuldbindingar sínar við NATO og myndi koma Evrópu til varnar ef ráðist væri á álfuna.
Trump fyrir vonbrigðum með stuðning NATO í Íransstríðinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd