Fyrrverandi starfsmaður á rétt á 19,9 milljónum í vangoldin laun

Fyrrverandi kokkur hjá Vietnam Restaurant, sem var í eigu athafnamannsins Quang Lé, hafði betur gegn þrotabúi veitingastaðarins í Landsrétti í vikunni.Úrskurðað var að starfsmaðurinn ætti forgangskröfu um 19,9 milljónir fyrir vangoldin laun og orlof í þrotabúið, þar af rétt rúmar 14 milljónir fyrir ógreidda yfirvinnu.Starfsmaðurinn starfaði hjá Vietnam Restaurant frá því sumarið 2022 og þangað til í mars 2024 þegar honum var lokað í tengslum við lögregluaðgerðir vegna rannsóknar á Quang Lé og fyrirtækjum hans. Hann er grunaður um mansal og skipulagða glæpastarfsemi.Veitingastaðurinn var tekinn til gjaldþrotaskipta í september 2024. DEILDU UM YFIRVINNUNA Þrotabúið hafði samþykkt kröfu starfsmannsins um 4,4 milljónir í vangoldin dagvinnulaun en ágreiningur stóð um greiðslu fyrir ógreidda
Fyrrverandi starfsmaður á rétt á 19,9 milljónum í vangoldin laun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd