Eldur kviknaði í bíl í íbúagötu í Fossvogi á níunda tímanum í kvöld. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu eru tveir slökkviliðsbílar á vettvangi. Útkall barst stuttu fyrir klukkan níu.Hann sagði ekki enn liggja fyrir hvað hafi valdið eldinum. Hann býst við að slökkvistörfum verði lokið á næsta klukkutímanum.RÚV