Lögreglumaður á höfuðborgarsvæðinu greindist með sofandi berkla í febrúar eftir að hafa verið útsettur fyrir sjúkdómnum þó nokkrum sinnum. Margir mánuðir liðu, að hans sögn, frá því hann smitaðist og þangað til hann greindist.Það var lögreglumaðurinn sjálfur sem óskaði eftir því að fara í berklapróf. Það gerði hann eftir að nokkrir samstarfsmenn höfðu verið útsettir fyrir berklum frá manneskju sem lögreglumaðurinn hafði sjálfur oft haft afskipti af.Lögreglumaðurinn kýs að tjá sig ekki undir nafni.„Það var hálfgerð smitrakning sem ég frétti af. Þá fór ég að rifja upp mín afskipti af aðilanum og fattaði að það væru líkur á að ég gæti verið smitaður. Ég var með viðkomandi í langan tíma og hann var með mikil einkenni,“ segir hann. SMITVÖRNUM ÁBÓTAVANT Í febrúar var greint frá því að starfsf