Áheyrnarfulltrúar starfsmanna og stjórnenda í leikskólum og foreldra leikskólabarna gagnrýna þá breytingu að meirihlutinn hafi aðskilið grunn- og leikskólastigið í tveimur nýjum ráðum. Þá gagnrýna fulltrúar starfsmanna og stjórnenda það harðlega að meirihluti ætli í samtali við ráðherra um styttingu leikskólakennaranámsins.