Brú yfir Hornafjarðarfljót opnuð

Hringvegurinn styttist um tólf kílómetra í dag þegar nýr vegur um Hornafjarðarfljót var opnaður. Samtals voru byggðir 28 kílómetrar af nýjum vegum og fjórar tvíbreiðar brýr. Þá var gert nýtt hringtorg sem tengir Hringveginn við Hafnarveg og Nesjahverfi.Nokkrar tafir urðu á verklokum en brúin átti að opna í desember í fyrra. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, segir að tekin hafi verið ákvörðun um að fresta verklokum. „Það var þannig tíðarfar að það var heppilegra upp á gæði mannvirkisins að draga það aðeins,“ segir hún.Veggjöld munu standa undir hluta kostnaðar brúarinnar. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornarfjarðar, segir veggjöld sem slík ekki koma á óvart en að upphæðin geri það. Stök ferð yfir brúna mun kosta 1.500 krónur.Bæjarbúar taka undir þessi sjónarmið.
Brú yfir Hornafjarðarfljót opnuð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd