Tinna Bjarnadóttir, blómaskreytir á Selfossi, ætlar að taka þátt í heimsmeistarakeppni í blómaskreytingum í Singapúr í júlí. Hún er fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt í keppni sem þessari. Hún er með sína eigin blómabúð í miðbænum á Selfossi, sem heitir Blómahúsið 1905, en nú er það heimsmeistarakeppnin sem á hug hennar allan.Tinna og aðstoðarmaður hennar eru við æfingar í skemmu rétt fyrir utan Selfoss alla daga enda stórt og mikið verkefni að taka þátt í alþjóðlegri heimsmeistarakeppni í blómaskreytingum fyrstu dagana í júlí í Singapúr.Tinna Bjarnadóttir, blómaskreytir á Selfossi, hefur nóg að gera þessa dagana því hún er að fara að keppa í heimsmeistarakeppni í blómaskreytingum í Singapúr. Þátttakendur frá 17 löndum munu taka þátt.„Þetta eru fjögur verkefni sem allir gera. Þrjú eru