Íslenskumælandi kona taldi sig hafa orðið fyrir mismunun á grundvelli tungumálakunnáttu og þjóðernisuppruna þegar henni var neitað um þjónustu á veitingastaðnum Hard Rock á Lækjargötu árið 2024. Leitaði hún því til kærunefndar jafnréttismála sem komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri um brot að ræða. Úrskurðurinn féll þann 29. maí en var birtur í gær.