„Þeir eru að koma í rólegheitum aftur, eru day-by-day (staðan metin frá degi til dags) hjá okkur," segir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, um þá Davíð Ingvarsson og Kristófer Inga Kristinsson sem voru ekki með Blikum gegn KA um helgina. Á morgun tekur Breiðablik á móti Víkingi í 12. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á Kópavogsvelli.