Maður var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa laugardaginn 20. september árið 2025, ekið bíl, sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis, og farið í þrígang gegn rauðu ljósi: Á gatnamótum Miklubrautar og Hlíðarfótar, á gatnamótum Miklubrautar viðLönguhlíð og á Háaleitisbraut til suðurs. Lögregla elti manninn og hlýddi hann ekki fyrirmælum hennar um að stöðva. Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og boðaði ekki forföll. Var því kveðinn upp yfir honum dómur að honum fjarstöddum.