Hvert hitametið á eftir öðru hefur fallið í Evrópuríkjum í dag vegna hitabylgju sem gengur yfir álfuna. Á Spáni eru tvö dauðsföll rakin beint til ofhitunar og í Frakklandi eru 45 dauðsföll rakin til hitabylgjunnar. 50 ÁRA GAMALT HITAMET FÉLL Hitamet féll í Bretlandi í dag þegar 36,1 stig mældist í Gosport í Hampshire í suðurhluta Englands. Þetta er mesti hiti sem mælst hefur í júnímánuði. Fyrra met var sett fyrir 50 árum þegar 35,6 stig mældust í Southampton í hitabylgju 1976.Dagurinn var einnig sá heitasti það sem af er ári í Skotlandi. Hiti mældist mestur 29,4 stig í bænum Dyce í Aberdeen. 29 stiga hiti mældist einnig í Aboyne í Aberdeenshire, Leuchars í Fife og Edinborg.Talsverðar samgöngutruflanir hafa verið vegna hitans og margar lestarferðir fallið niður. Fréttamaður breska ríkisú