Ólafur Aðalsteinsson, sviðstjóri innviðasviðs hjá Fjarskiptastofu, segir að enn séu 6.000 tæki rauðmerkt hjá þeim, sem voru 30.000 í upphafi árs. Það eru tæki sem ekki geta hringt í neyðarnúmer eftir að slökkt var á 2G- og 3G-sendum landsins.Eigendur þessara tækja ættu að hafa fengið skilaboð þess efnis í símann sinn. Til skoðunar sé að senda bréfpóst til ítrekunar.Nýverið náði íbúi á Skagaströnd ekki að hringja í Neyðarlínuna eftir aðstoð en hann gat notað símann til að hringja önnur símtöl. Skýringin er að sum símtæki eru þannig forrituð að þegar á að hringja neyðarsímtal fer síminn í neyðarham og leitar á 3G-kerfið, sem búið er að slökkva á hér á landi. Rannsókn á því máli stendur enn yfir, segir Ólafur. Beðið er eftir því að maðurinn eigi leið til Reykjavíkur til að láta yfirfara tækið