Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa ekið á konu á Sæbraut í september 2024 með þeim afleiðingum að hún lést samstundis. Hann var sviptur ökurétti í eitt ár og gert að greiða móður þeirrar látnu tvær milljónir í miskabætur.Fangelsisrefsingin fellur þó niður tveimur árum eftir birtingu dómsins ef maðurinn heldur almennt skilorð. Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjaness í febrúar síðastliðnum.Dómurinn var kveðinn upp í febrúar en birtur í dag. Vísir greindi fyrst frá niðurstöðu dómsins. KEYRÐI Á 132 KM/KLST HRAÐA Ökumaðurinn keyrði norður Sæbraut í lok september 2024 á allt að 132 km/klst og yfir gatnamót við Súðavog á gulu umferðarljósi. Leyfður hámarkshraði á götunni er 60 km/klst en bleyta var á veginum og myrkur.Á gatnamótunum ók hann á gangandi vegfarand