Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni er sammála umhverfisráðherra um að ástæða sé til að herða viðurlög við utanvegaakstri. Eðlilegt sé að atvik eins og uppátæki erlendra ferðamanna við Emstruleið og Kötlujökul síðustu helgi dragi dilk á eftir sér.Ferðamennirnir frönsku fengu sekt fyrir athæfið. Þeir greiddu sektina og eru því lausir allra mála. Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir lögreglu ekki telja ástæðu til að gefa upp sektarupphæðina.„Við höfum ekki gefið hana upp og teljum ekki ástæðu til þess. Í slíkum málum höfum við ekki verið að gefa upp einhverjar krónutölur og höldum okkur við það. En sektarheimildin er vissulega til staðar og er hún allt frá tíu þúsund krónum upp til einnar milljónar.“Íris segir upphæð sektarinnar fara eftir því hversu umfangsm