Dean Martin mun láta af störfum sem aðstoðarþjálfari ÍA þann 4. júlí en hann er að taka við nýju starfi sem aðstoðarþjálfari hjá Al Nahdha í Óman. Síðasti leikur hans með ÍA verður gegn Breiðabliki þann 4. júlí áður en hann heldur til Óman. Dean hefur verið í teymi Skagamanna í rúm tvö ár en hann var jafnframt leikmaður ÍA og áður aðstoðarþjálfari hjá liðinu 2010-2013. Al Nahdh endaði liðið í fjórða sæti af 14 liðum í efstu deild í Óman. Liðið hefur fjórum sinnum orðið deildarmeistarar. Fótbolti.net ræddi við Dean um skrefið áhugaverða og hvernig það kæmi til að hann héldi á suðausturströnd Arabíuskagans.