Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson gæti verið á leið til gríska félagsins Kalamata sem vill kaupa hann frá sænska félaginu Malmö. Arnór, sem er 27 ára sóknarmaður, hefur verið í rúmt ár hjá Malmö eftir að hafa verið hjá Blackburn á Englandi. Arnór náði ekki að sýna oft hvað í honum býr á síðasta tímabili vegna meiðsla. Á þessu tímabili spilaði hann í sænska bikarnum, byrjaði hann svo fyrsta bikaleikinn og kom við sögu sem varamaður í næstu þremur.