Pretty Yende í „Ástardrykknum“ í Barcelona

Hljóðritunin var gerð á sýningu Liceu-leikhússins í Barcelona, 13. desember í fyrra. Stjórnandi er Diego Matheuz. Gaetano Donizetti samdi óperuna „Ástardrykkurinn“ (L´elisir d´amore) árið 1832 við texta eftir Felice Romani sem byggður var á öðrum texta eftir Eugene Scribe. Óperan er meðal annars fræg fyrir hina fallegu tenóraríu „Una furtiva lagrima“ sem sungin er í seinni þætti hennar. FRÓÐLEG BÓK Í upphafi fyrri þáttar situr hin unga og glæsilega Adina úti fyrir sveitasetri sínu og les í bók. Vinnufólk hennar situr og hvílir sig í forsælunni af trjánum. Sveitapilturinn Nemorino stendur álengdar og horfir á Adinu fullur aðdáunar. Hann hefur lengi verið ástfanginn af henni, en hefur enga von um að hún endurgjaldi ást hans. Allt í einu rekur Adina upp skellihlátur yfir bókinni. Sveitastú
Pretty Yende í „Ástardrykknum“ í Barcelona

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd