Vélfag ætlar næst í mál við Arion og Landsbankann

Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður segir að næstu skref fyrir Vélfag verði að lögsækja Arion banka og Landsbankann eftir að íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfum Vélfags í Hæstarétti. Þá var máli Ivan Nicolai Kaufmanns, meirihlutaeiganda Vélfags, vísað frá.Sigurður flutti málin fyrir hönd Vélfags og Kaufmanns. Hann segir niðurstöðuna vissulega vonbrigði.„En dómurinn skýrir þó allavega lögin um þvingunaraðgerðir og tekur fram að framkvæmdavald varðandi þvingunaraðgerðir sé ekki hjá stjórnvöldum heldur hjá bankakerfinu, sem er í sjálfu sér svolítið merkilegt og svona kannski á skjön við þrígreiningu ríkisvalds að Alþingi fari fram hjá framkvæmdavaldinu og feli einkaaðilum að sjá um að beita einstaklinga þvingunaraðgerðum,“ segir hann.Næstu skref verði að stefna Arion banka til þe
Vélfag ætlar næst í mál við Arion og Landsbankann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd