Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Maðurinn ók rúmlega 130 kílómetra hraða á unga konu sem lést. Í dómnum segir að fresta beri fullnustu refsingarinnar haldi maðurinn skilorð í tvö ár.