Milljarðaframkvæmdir framundan við ónýtar gangstéttir

Reykjavíkurborg hyggur á stórátak í að laga skemmdar gangstéttir víða um borgina.Starfsmenn Reykjavíkurborgar unnu í gær við að laga illa farna gangstétt í Grafarvogi. Fréttastofa talaði við konu á tíræðisaldri sem slasaðist illa þar um helgina þegar hún féll úr hjólastól. Ítrekað hafði verið varað við því að gangstéttin væri slysagildra.Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að stéttin hafi verið á framkvæmdaáætlun sumarsins.„Þær stéttir sem eru undir eru um alla borg því að ástandi er mjög slæmt. En við fórum fram á að þessi tiltekna stétt yrði sett í algeran forgang og framkvæmdir hæfust strax. Því var vel tekið og okkar góða fólk fór af stað undir eins.“Framundan sé hins vegar stórt viðhaldsátak í gangstéttum borgarinnar. Það muni taka kjörtímabilið að leysa úr því.„Við viljum bregðast
Milljarðaframkvæmdir framundan við ónýtar gangstéttir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd