Evrópubúar eru enn í greipum hitabylgju. Viðbúið er að hiti fari yfir þrjátíu og fimm stig hjá tæplega 100 milljónum manna í álfunni. Heitast verður í Frakklandi og á Spáni. Sendiherra Íslands á Spáni segir fólk vant miklum hita en hann sé óvenjulega snemma á ferðinni. YFIR 30 STIGA HITI HJÁ MEIRA EN TVEIMUR ÞRIÐJU EVRÓPUBÚA Í mati AFP-fréttastofunnar er auk þess búist við yfir 30 stiga hita hjá yfir þrjú hundruð og fimmtíu milljónum, sem eru meira en tveir þriðju íbúa álfunnar.Í vesturhluta Frakklands eru tugir þúsunda heimila rafmagnslaus vegna hitans. Viðvaranir ná yfir rúmlega helming landsins og búist er við að hiti fari hæst í 43 stig síðar í dag.Rauð viðvörun er einnig í Bretlandi og búið að loka yfir 1000 skólum á Englandi og í Wales. Samkvæmt veðurspám gæti hiti farið upp í 37