Opnun vegar um Hornafjarðarfljót langþráð en há veggjöld komi á óvart

Bæjarstjóri Hornafjarðar segir opnun brúar yfir Hornafjarðarfljót langþráða. Hringvegurinn styttist um 12 km í dag þegar brúin og nýr vegur verða opnuð í dag.„Þetta er í raun og veru vegur sem þjappar samfélaginu saman, auðveldar fólki vestan fljóta að sækja ýmsa þjónustu hingað til Hafnar, og íbúum hér á Höfn að sækja atvinnu vestur yfir fljót,“ segir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri í Hornafirði.Framkvæmdin um Hornafjarðarfljót er sú fyrsta sem fjármögnuð er í samræmi við lög um samvinnuverkefni og þar verða rukkuð veggjöld frá 1. september. Hjalti segir það ekki koma á óvart að veggjöld verði rukkuð.„Það kom okkur hins vegar á óvart hversu há þau verða. Við höfum verið að velta því fyrir okkur hvort þetta sé stefnan að fámennari staðir þurfi að greiða hærri veggjöld heldur en þá fjölme
Opnun vegar um Hornafjarðarfljót langþráð en há veggjöld komi á óvart

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd