Farsímasala hjá Elko hefur aukist lítillega frá því að slökkt var á 2G- og 3G-sendum hérlendis. Framkvæmdastjóri Elko segir ekki hægt að tengja það beint við útfösun eldra farsímakerfis, þar sem margt annað hafi áhrif á söluna.„Við höfum séð lítilsháttar aukningu í sölu farsíma, undanfarna þrjá mánuði, sérstaklega í ódýrari tækjum. Ég get ekki fullyrt að sú aukning tengist útfösun 2G- og 3G-kerfana, þar sem það eru fleiri þættir sem hafa áhrif á söluna hjá okkur,“ segir Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Elko.Elko selur töluvert af farsímum á hverju ári. Þegar upplýsingar bárust frá Fjarskiptastofu árið 2022 um að 2G- og 3G-kerfið væri á útleið tók Elko þau tæki sem virkuðu eingöngu á þau úr sölu. Óttar segir að meðal líftími símtækja sé þrjú til fögur ár, þó að sumir dugi eitthvað