Íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfum fyrirtækisins Vélfags í Hæstarétti.Máli Ivan Nicolai Kaufmann, meirihlutaeiganda fyrirtækisins, var vísað frá.Vélfag krafðist þess að íslenska ríkið myndi snúa við ákvörðun Arion banka að frysta fjármuni félagsins. Fyrirtækið varð á síðasta ári fyrsta fyrirtækið til að vera beitt efnahagsþvingunum vegna meintra tengsla við rússneska skuggaflotann. Vélfag hefur viljað meina að ákvörðunarvald um það liggi hjá ríkinu en ekki bankanum.Dómurinn hefur ekki enn verið birtur og því liggur rökstuðningur hans ekki fyrir.Málin eru tvö og var dómur kveðinn upp í þeim á sama tíma. Hið seinna sneri að kröfu Kaufmann um að honum yrði veitt leyfi til þess að setjast í stjórn Vélfags. Honum var meinað um stjórnarsetu af utanríkisráðuneytinu þar sem hann var ekki ta