Fólk sem var á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði er ósátt við að tímarammi rannsóknar íslenska ríkisins á fósturheimilum nái ekki lengra fram en til ársins 2002. Tímamörk rannsóknarinnar miðast við gildistöku nýrra barnaverndarlaga það ár. Lagafrumvarp um að skipa rannsóknarefndina var samþykkt í þinglok 19. júní.Fósturheimilið Gauksstaðir var starfandi í Garði á Suðurnesjum 2009-2019. Því var lokað þegar lögreglurannsókn hófst vegna meintra brota á lögum um barnavernd. Rannsóknin var felld niður 2021 vegna fyrningar á meintum brotum og vegna þess að brotin þóttu ekki líkleg til sakfellingar.Skipun rannsóknarnefndarinnar byggist á umræðu sem hófst í samfélaginu í febrúar, þegar fréttaskýringaþátturinn Kveikur greindi frá Bakkakotsmálinu.Aron Eiríksson er einn af þeim sem var í fóstri á G