Konur voru gerendur í 27% heimilisofbeldismála á fyrstu þremur mánuðum ársins. Í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra segir að hlutfallið hafi hækkað jafnt og þétt síðustu ár úr 17% árið 2021.Þar segir að helst megi rekja þetta til hærra hlutfalls í ofbeldi af hendi fjölskyldumeðlims. Í slíkum málum eru konur 33% gerenda en í málum þar sem ofbeldið er af hendi maka eða fyrrum maka er hlutfall kvenkyns gerenda 21,8%.Karlar eru þó áfram í miklum meirihluta árásaraðila eða 73,5% og konur eru 67,9% árásarþola, þegar litið er til allra heimilisofbeldismála á fyrsta ársfjórðungi. Meðalaldur árásaraðila var 36 ár og meðalaldur árásarþola tæp 34 ár.Tilkynningum um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra eða tengdra aðila fækkaði á fyrsta ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra úr 654 í 585.