Erica Mancel, systir Emeric Marcel, mannsins sem fannst látinn á hótelherbergi á Edition-hóteli í fyrra, segir bróður sinn hafa verið mjög stjórnsaman. Hún segir dóttur hans, Catherine , sem fannst líka látin, hafa verið greindarskerta.Aðalmeðferð í svokölluðu Edition-máli hélt áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ming Ting Mancel er ákærð fyrir að hafa orðið þrítugri dóttur sinni að bana í samverknaði við eiginmann sinn. FAÐIRINN ÁKVAÐ ALLT Systir fjölskylduföðurins gaf skýrslu fyrir dómi í morgun. Hún sagði fjölskylduna ekki hafa lifað venjulegu fjölskyldulífi, þvert á móti hafi það minnt hana á sjöunda áratuginn. Hún segir Ming Ting Mancel og Catherine Mancel, dóttur þeirra, hafa verið undirgefnar bróður hennar og í raun háðar honum.Emeric ákvað allt, segir Erica Mancel, hann hafi s