Jóhann Freyr Hallgrímsson kom fyrir dómara í Phuket á Taílandi í dag, en hann hefur verið kærður fyrir tilraun til þjófnaðar. Jóhann situr núna í fangelsi og bíður réttarhalda. Samkvæmt eiginkonu hans, Rakel, þarf hann að greiða meintum brotaþola andvirði 100 þúsund íslenskra króna til að losna úr prísundinni. DV getur ekki staðfest að þessar upplýsingar séu réttar en Rakel er að sögn að útvega féð.